Heim Sambönd og kynlíf Vinir Hvernig eignast maður vini?

Hvernig eignast maður vini?

0
1567

Ef maður er einmana, eða langar til að breikka vinahópinn, er ýmislegt hægt að gera til að eignast nýja vini.

1 Að vera meðal fólks

Það gerist lítið ef maður hangir heima fyrir framan sjónvarpið. Auðvitað má kynnast nýju fólki á Netinu, en það getur reynst gott að kynnast fólki í eigin persónu.

2 Vinna bug á feimninni

Það er nauðsynlegt, ef maður vill kynnast nýju fólki. Og sé maður feiminn, þá verður maður bara samt að láta vaða og henda sér út í samskipti við annað fólk.

3 Vera maður sjálfur

Það er eina leiðin ef maður vill stofna til nýrrar vináttu. Ef maður er að þykjast vera eitthvað annað en maður er, þá mun fólk fljótlega sjá í gegnum mann.

4 Finna fólk á sömu bylgjulengd

Það getur verið gagnlegt að fara á námskeið eða ganga í félag sem maður hefur áhuga á. Þar kynnist maður fólki með sömu áhugamál og maður sjálfur.

5 Vinna í samskiptahæfileikunum

Til eru margar leiðir til að vinna í því að verða hæfari í samskiptum, verða líflegri og skemmtilegri. Oft kemur þetta líka af sjálfu sér þegar maður slakar á og leyfir sér að vera maður sjálfur. En það getur líka verið sniðugt að efla samskiptahæfileikana meðvitað. Hægt er að sækja ýmis námskeið til þess, t.d. á vegum Dale Carnegie og lesa bækur sem fjalla um samskipti. Mikilvægast af öllu er þó að brosa, taka þátt í samræðum en gæta þess þó að tala fólk ekki í kaf.

6 Fylgja samskiptunum eftir

Þegar maður hefur hitt nýja manneskju sem maður vill kynnast betur þarf að gæta þess að halda sambandinu á lofti. Tölvupóstur, símtal eða vinabeiðni á Fésbókinni getur verið ágætis byrjun.

7 Stunda félagsstarf

Það getur verið sniðugt að taka þátt í félagsstarfi til að kynnast fólki.  Flest félög og hópar taka vel á móti nýliðum og eru þannig vettvangur til þess að hitta fyrir fólk sem hefur svipuð áhugamál og þú. Gakktu í kór, stundaðu skátastarf eða skelltu þér í fótbolta. Hvað sem er!

Á áttavitanum er listi yfir alls konar félög og samtök fyrir ungt fólk.

8 Vera þolinmóður

Maður eignast ekki nýjan „besta vin“ einn tveir og tíu. Því þarf að sýna þolinmæði og leyfa samskiptunum að þróast.

  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

ENGAR ATHUGASEMDIR