Sérstökum hundasvæðum hefur fjölgað töluvert undan farin ár, enda er lausaganga hunda bönnuð í öllum þéttbýlum (bæjarfélögum) hér á landi og því eingöngu leyfileg í deifbýli (fjarri byggð) og á afmökuðum svæðum í og við þéttbýli.
Áhugavert: Að fá sér hund?
Hundasvæði í Reykjkavík
Hundagerði í Reykjavík eru:
- Geirsnef – u.þ.b. 600m2 hundagerði ásamt því að lausaganga hunda er leyfð á svæðinu.
- Í Laugardal við Engjaveg á túninu milli Húsdýragarðsins og Suðurlandsbrautar.
- Í Miðborg – á túninu milli N1 og Umferðarmiðstöðvar(BSÍ).
- Í Breiðholti – við göngustíg milli efra og neðra Breiðholts.
Óafgirt hundasvæði í Reykjavík
- á Geirsnefi.
- á Geldinganesi.
- við Rauðavatn, utan göngustígs við vatnið. Þó skal hafa í huga að leiðbeiningaskilti eru á nokkrum stöðum á göngustígnum sem segja til um hvort hundurinn eigi að vera í bandi.
Hundasvæði í Hafnarfirði
Hundasvæðið í Hafnafirði er staðsett við Hvaleyrarvatnsveg strax eftir að beygt er af Krýsuvíkurveginum.
Hundasvæði í Garðarbæ
Hundasleppisvæði í Garðabæ er staðsett á útivistasvæði sem nefnist Bali og liggur að mörkum Hafnarfjarðar. Svæðið er ekki afgirt.
Hundasvæði á Akureyri
- Við Háskólann á Akureyri, nánar tiltekið, Norðurslóð norðan við Borgir.
- Annað hundasvæði Akureyrar er á Blómsturvöllum rétt utan bæjarins. Svæðið er stórt, afgirt, með fjöru og gönguleiðum.
Hundasvæði á Akranesi
Hundasleppisvæði á Akranesi er óafgirt svæði við gamla Akrafjallsveg.
Hundasvæði við Selfoss
Afgirt hundasleppisvæði við Selfoss er sunnan við Suðurhóla og austan Lækjamótavegar.
Hundasvæði í Fjarðabyggð
Hundasleppisvæði í Fjarðabyggð eru:
- Á Norðfirði er svæðið innan við íbúabyggð fyrir ofan gamla frystihúsið norðan Norðfjarðarvegar. Stærð um 3 hektarar.
- Á Eskifirði er svæðið innan byggðar ofan vegslóða og utan við Þverá. Stærð um 6 hektarar.
- Á Reyðarfirði er svæðið í fjarðarbotni innan við Geithúsaá. Stærð um 7 hektarar.
- Á Fáskrúðsfirði er svæðið gamla flugbrautin. Stærð um 10 hektarar.
- Á Stöðvarfirði er svæðið utan við byggðina neðan Suðurfjarðarvegar innan við gámavöllinn. Stærð um 3 hektarar.
Þú getur nálgast upplýsingar um hundasvæði í fjarðarbyggð á vefsvæði fjarðarbyggðar.
Athugið að frekari upplýsingar um hundasvæði á landsvísu má nálgast á vef Hundasamfélagsins.