Er eðlilegt að það líði næstum yfir mig þegar ég fæ það?

94

Hæ,

það hefur 3 sinnum hálf liðið yfir mig meðan ég er að fá það með sama makanum. Er það eðlilegt , og afhverju gerist það ?
Hann er samt með eðlilega stærð.

Þú skalt panta þér tíma hjá lækni til að ræða þetta.  Það þarf að mæla hjá þér blóðþrýsting og púls og útiloka að nokkuð sé að hjá þér.  Það þarf alltaf að skoða það þegar einstaklingur lendir í því að hálf missa meðvitund eða missir meðvitund sama í hvaða aðstæðum það er.   Þú skalt panta þér tíma hjá lækni á heilsugæslunni í þínu hverfi sem fyrst.

Gangi þér vel.


  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

Ert þú með spurningu?

Öflugt ráðgjafarteymi sérfræðinga svarar spurningum þínum; um kynlíf, námið, sjálfsmyndina, þunglyndi, fíkn, sambönd eða hvað annað sem þér liggur á hjarta. Full nafnleynd og 100% trúnaður.

Spyrja spurningar