Er ungmenna starfið hjá samtökunum 78 í gangi á sumrin líka? Ég var að flytja í bæinn og er að velta fyrir mér hvernig allt virkar.
Takk fyrirfram 🙂
– Ruglaður unglingur
Hæhæ,
Starfið hjá ungliðunum er allt árið í kring og hittast þeir alltaf á sunnudögum klukkan 20:00. Starfið er opið fyrir alla og oftast er hist í húsnæði Samtakanna að Suðurgötu en hittingar eru þó stundum færðir út eða eitthvað ef gott veður er og svona. Endilega hafðu samband við þau hjá Samtökunum fyrir frekari upplýsingar http://www.samtokin78.is/um-felagid/starfshopar eða fylgstu með þeim á facebooksíðu ungliðanna https://www.facebook.com/unglidar78.
Góða skemmtun,
Tótalráðgjöf
HVAÐ SEGIR ÞÚ UM ÞETTA EFNI?