Eru virkir opnir hópar fyrir fólk frá 20-30 ish aldri?

9

Mig langar að koma nokkrar spurningar ef ég mætti það.
Og spurningarnar tengjast um hópa fyrir fólk frá 20-30 ish aldri.

1. Vitið þið um virka opna hópa (t.d á facebook, eða á Höfuðborgarsvæðinu) til að kíkja á og er þá að hugsa helst um ekkert eða lágt gjald?
2. Vitiði um einhvern viðburð til að kynnast nýju fólki?
3. Og síðasta spurningin. Er einhver námskeið, eða eitthvað álíka sem er ekki tengt vinnu heldur til að hitta fólk?

Ég er svolítið örvæntingafullur að vilja kynnast fólki á mínum aldri, er 27.

Kveðja,
örvæntingafullur 27 ára.

Sæll og takk fyrir að hafa samband við ráðgjöf Áttavitans,

Það eru til margir Facebook hópar sem halda utan um hittinga hjá fólki á aldrinum 20-30 ára. Flestir snúa sér að ákveðnum hópum eins og hlaupahópum, tölvuleikja hópum o.s.fl. Ég mæli með að leita af hópum sem eru samhliða áhugamálunum þínum.

Tilvalin staður að hitta nýtt fólk er til dæmis í ræktinni eða öðrum íþróttum/útivistarhópum. Nám getur einnig verið góður staður til að kynnast nýjum hópum ásamt sjálfboðaliðastarfi og mismunandi vinnustöðum. Ef þú hefur áhuga á námskeiðum gæti Dale Carnegie verið góður staður fyrir þig að kynnast nýju fólki og efla samskiptahæfni þína. Einnig eru námskeið hjá KVAN fyrir fullorðna sem þú getur kíkt á. Ég set slóðirnar meðfylgjandi. Síðan er auðvitað hægt að skrá sig á allskonar námskeið eins og til dæmis jóganámskeið, sundnámskeið, dansnámskeið o.s.fl.

Ég vona að þér gangi vel!

Kær kveðja,

Ráðgjafi Áttavitans

https://island.dale.is/einstaklingar/dale-carnegie-namskeidid/

KVAN fyrir fullorðna


  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

Ert þú með spurningu?

Öflugt ráðgjafarteymi sérfræðinga svarar spurningum þínum; um kynlíf, námið, sjálfsmyndina, þunglyndi, fíkn, sambönd eða hvað annað sem þér liggur á hjarta. Full nafnleynd og 100% trúnaður.

Spyrja spurningar