Í hvaða menntaskóla er best að fara í þegar maður vill læra kvikmyndarhönnun og þannig líkt?
Sæl og takk fyrir spurninguna. Þar sem þú ert á höfuðborgarsvæðinu þá tekur svarið mið af því.
Ég myndi helst benda þér á að kíkja á listnámsbraut hjá Borgarholtsskóla þar sem hægt er að leggja áherslu á kvikmyndagerð. Þú getur kíkt á skipulagið hér: http://www.bhs.is/namid/brautir/listnam/
Tækniskólinn býður líka upp á nám í kvikmyndatækni, þó með nokkrum forkröfum, sjá hér http://www.tskoli.is/skolar/upplysingataekniskolinn/kvikmyndataekni/
Í september 2015 birtist grein á Áttavitanum sem heitir „Hvernig verð ég kvikmyndagerðarmaður?“ sem þú gætir haft gagn af að lesa.
Ég fagna áhuga þínum því það vantar svo sannarlega fleiri konur í kvikmyndagerð, bæði hér heima sem og erlendis.
Gangi þér vel!
HVAÐ SEGIR ÞÚ UM ÞETTA EFNI?