Hvítar bólur við kónginn

618

Ég er með spurningu. Fyrir sirka ári fék ég margar litlar hvítar bólur fyrir neðan kónginn ég finn ekki fyrir þeim, þær eru bara ljótar. Á ég að vera hræddur?

þessi síða hjálpar mikið

Nei þarft ekki að vera hræddur við þessar bólur.  Þær eru að öllum líkindum saklausar en geta verið leiðinlegar.  Það þarf ekkert að gera í þessu og þú skalt alls ekki kreista bólurnar.  Bara þvo þér með vatni daglega, skola vel undir forhúð.  Ef þú finnur fyrir  bólgu, kláða eða kemur vond lykt þá skaltu ræða það við lækni á heilsugæslunni.  En lang oftast fara bólurnar að sjálfu sér en það getur tekið nokkrar vikur og það er lítið við því að gera.

Gangi þér vel.


  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

Ert þú með spurningu?

Öflugt ráðgjafarteymi sérfræðinga svarar spurningum þínum; um kynlíf, námið, sjálfsmyndina, þunglyndi, fíkn, sambönd eða hvað annað sem þér liggur á hjarta. Full nafnleynd og 100% trúnaður.

Spyrja spurningar