Mér byrjaði að blæða eftir samfarir

2523

Ég lenti í þvi um daginn að mér byrjaði að blæða eftir samfarir, enginn sársauki, bara blóð, er á miðju pilluspjaldi. Hvað gæti þetta verið og ætti eg að hafa áhyggjur ?

Líklegast er engin ástæða til að hafa áhyggjur.  Það gæti hafa komið smá rifa við samfarirnar eða það gæti hafa verið blóðpollur í leginu sem hreinsast út (eðlilegt).  Það er samt ástæða til að hafa í huga hvort einhver séns sé á því að þú sért ólétt eða með kynsjúkdóm, sérstaklega ef blæðing hélt eitthvað áfram.  Mögulega gæti þetta verið milliblæðing vegna pillunnar, kannski því þú hefur sleppt pilluhléi (?).  Ef að blæðing stoppaði fljótt og þú hefur engin önnur einkenni þá skaltu bara sjá til og ekki hafa áhyggjur en hafa þessi atriði í huga ef það fer að blæða aftur.

Gangi þér vel.


  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

Ert þú með spurningu?

Öflugt ráðgjafarteymi sérfræðinga svarar spurningum þínum; um kynlíf, námið, sjálfsmyndina, þunglyndi, fíkn, sambönd eða hvað annað sem þér liggur á hjarta. Full nafnleynd og 100% trúnaður.

Spyrja spurningar