Svíður í kynfærum eftir kynlíf

686

Hæhææ, ég stundaði kynlíf fyrir akkurat viku nuna með strak sem eg þekki ekkert mjög vel og við notuðum ekki smokk og hann for i endaþarminum minn og svo inni leggönginn. Svo 3 dögum eftir ca klæjaði mer ekkert sma mikið þarna niðri og eftir 5 daga er ekkert sma vont að pissa, svíður ekkert sma mikið og vont að sitja eða standa best að liggja og held eg se lika með bolur a kynfærunum. Hvað heldurðu að þetta se?

Þú þarft að fara til læknis sem fyrst. Þetta gæti verið sýking, gæti verið kynsjúkdómur og/eða blöðrubólga (þvagfærasýking). Það ætti aldrei að fara beint úr rassi í píku. Það eru ekki sömu bakteríur á þessum svæðum og því getur komið sýking ef bakteríur úr endaþarmi komast í leggöngin.  Einnig er aukin hætta á þvagfærasýkingu. Ef þú færð ekki tíma strax þá skaltu fá tíma hjá hjúkrunarfræðing á heilsugæslunni og fá að skila inn þvagprufu til að byrja með. Ef ekkert er gert í svona sýkingu þá getur það verið hættulegt, sýking komist í nýru eða leg og valdið skemmdum. Þú skalt panta á þinni heilsugæslu eða á göngudeild húð- og kynsjúkdóma.

Vona að þú notir smokkinn næst og passir þig á sýkingarhættunni við endaþarmsmök.

Farðu vel með þig.


  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

Ert þú með spurningu?

Öflugt ráðgjafarteymi sérfræðinga svarar spurningum þínum; um kynlíf, námið, sjálfsmyndina, þunglyndi, fíkn, sambönd eða hvað annað sem þér liggur á hjarta. Full nafnleynd og 100% trúnaður.

Spyrja spurningar