Hvað er jöfnunarstyrkur?
Jöfnunarstyrkur, eða dreifbýlisstyrkur, er ætlaður nemendum við framhaldsskóla sem stunda nám fjarri heimili sínu. Námið verður að vera skipulagt framhaldsskólanám að lágmarki 1 árs langt. Ekki er hægt að sækja um jöfnunarstyrk fyrir námi erlendis.
Hverjir eiga rétt á jöfnunarstyrk?
Þumalputtareglan er sú að allir framhalds- og menntaskólanemar sem stunda nám fjarri heimili sínu eiga rétt á jöfnunarstyrk. Nemendur sem eru á námslánum geta þó ekki fengið jöfnunarstyrk samhliða lánunum. Námið verður að vera skipulagt framhaldsskólanám, að lágmarki 1 ár og að hámarki 4 ár.
Hvernig er sótt um jöfnunarstyrk?
LÍN sér um umsóknir og úthlutanir jöfnunarstyrkja. Sótt er um á Mínu svæði á heimasíðu LÍN. Umsóknarfrestur er til 15. október fyrir haustönn og 15. febrúar fyrir vorönn.
Nánar má lesa um jöfnunarstyrk á vefsvæði LÍN.
Hversu hár er jöfnunarstyrkur?
Upphæðin er misjafnlega há ár hvert en hversu há tengist t.d. fjárlögum og fjölda umsókna. Skólaárið 2017/2018 var jöfnunarstyrkurinn 151.000 kr á önn fyrir dvalarstyrk og 86.000 kr fyrir akstursstyrk.
HVAÐ SEGIR ÞÚ UM ÞETTA EFNI?