Mörg hjón kjósa að halda giftingarafmælin sín hátíðleg með því að gera sér glaða stund saman eða halda jafnvel veislu þegar um stórafmæli er að ræða. Brúðkaupsafmæli bera nöfn sem vísa í hugmynd að gjöf eða skreytingum fyrir veislu. Sum pör gefa hvoru öðru gjöf með skírskotun í brúðkaupsafmælið, til dæmis bók á pappírsbrúðkaupi, peysu á bómullarbrúðkaupi og píanó á fílabeinsbrúðkaupi.
…..sennilega eru þó ekki margir sem gefa píanó í 14 ára brúðkaupsafmælisgjöf, en það væri samt töff hugmynd.
Listi yfir brúðkaupsafmæli
- 1 ára – Pappírsbrúðkaup
- 2 ára – Bómullarbrúðkaup
- 3 ára – Leðurbrúðkaup
- 4 ára – Blóma- og ávaxtabrúðkaup
- 5 ára – Trébrúðkaup
- 6 ára – Sykurbrúðkaup
- 7 ára – Ullarbrúðkaup
- 8 ára – Bronsbrúðkaup
- 9 ára – Leir- eða Pílubrúðkaup
- 10 ára – Tinbrúðkaup
- 11 ára – Stálbrúðkaup
- 12 ára – Silkibrúðkaup
- 12 og hálft ár – Koparbrúðkaup
- 13 ára – Knipplingabrúðkaup
- 14 ára – Fílabeinsbrúðkaup
- 15 ára – Kristalbrúðkaup
- 20 ára – Postulínsbrúðkaup
- 25 ára – Silfurbrúðkaup
- 30 ára – Perlubrúðkaup
- 35 ára – Kóralbrúðkaup
- 40 ára – Rúbínbrúðkaup
- 45 ára – Safírbrúðkaup
- 50 ára – Gullbrúðkaup
- 55 ára – Smaragðsbrúðkaup
- 60 ára – Demantsbrúðkaup
- 65 ára – Króndemantabrúðkaup
- 70 ára – Járn- eða Platínubrúðkaup
- 75 ára – Atóm- eða Gimsteinabrúðkaup
HVAÐ SEGIR ÞÚ UM ÞETTA EFNI?