Daginn. Mér hefur gengið illa að vera að kynnast nýju fólki og í vinnu og ég get verið stjórnsamur en ég þoli ekki þegar að fólk segir mér að gera hluti og ég á 2 Óvini og á enga vini í sjálfum sér. Er alltaf einn og er á mínu 19 ári að vinna í búð og að hætta í skóla. Vantar hjálp og ráð hvað ég get gert til að komast áfram í lífinu
Hæ og takk fyrir að hafa samband.
Einmannaleiki getur haft mikil áhrif á líðan og því um að gera að vinna markvisst gegn því.
Hér er linkur að grein með nothæfum punktum um hvernig er hægt að eignast nýja vini; https://attavitinn.is/sambond-og-kynlif/vinir/hvernig-eignast-madur-vini/
Einnig eru til mörg félög og hópar sem hægt er að taka þátt í til að bæta félagslífið en gott er að finna félag sem að hentar þínu áhugasviði, hér fylgir listi sem er þó alls ekki tæmandi; https://attavitinn.is/samfelagid/felog-og-hopar/ https://attavitinn.is/samfelagid/felagsstarf/
Að lokum fylgir listi yfir hvert er hægt að leita til að fá aðstoð við vanlíðan; https://attavitinn.is/heilsa/hvert-getur-folk-leitad-ef-thvi-lidur-illa/
og gott er að muna að það eru fleiri í sömu sporum og þú og flest fólk er tilbúið að kynnast nýju fólki og eignast nýja vini.
Með bestu kveðju,
Áttavitinn.
HVAÐ SEGIR ÞÚ UM ÞETTA EFNI?