Hvað er orlofsuppbót?

Orlofsuppbót er bónusgreiðsla sem atvinnuveitendum er skylt að greiða starfsfólki sínu, sem er venjulega greidd út í einni greiðslu 1. maí eða 1. júní.

Hverjir eiga rétt á orlofsuppbót?

Allir sem starfað hafa í 100% starfi í 45 vikur á ári eiga rétt á fullri orlofsuppbót. Sé fólk í hlutastarfi á það líka rétt á orlofsuppbót en fær hana greidda eftir starfshlutfalli sínu. Til að eiga rétt á lágmarksuppbót þarf fólk að hafa starfað í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum hjá sama fyrirtæki og fær þá greitt eftir starfshlutfalli og starfstíma.

Hversu há er orlofsuppbót?

Upphæðin fer eftir kjarasamningum hverju sinni. Hér að neðan má sjá upphæðir orlofsuppbótar árið 2022 hjá nokkrum vinnustöðum og stéttarfélögum:

  • Ríkið greiðir 53.000 krónur í orlofsuppbót árið 2022.
  • Reykjavíkurborg greiðir 53.000 krónur í orlofsuppbót árið 2022.
  • Orlofsuppbót samkvæmt samningum VR er 56.000 fyrir árið 2023.
  • Sveitarfélögin greiða 53.000 krónur í orlofsuppbót árið 2022.
  • Orlofuppbót samkvæmt samningum við Samtök atvinnulífsins er 53.000 fyrir árið 2022

Best er að hafa samband við sitt stéttarfélag til að spyrjast fyrir um orlofsuppbót og athuga hvaða rétt maður hefur.

Frí gegn orlofsuppbót

Í sumum kjarasamningum er heimilt með samkomulagi milli starfsmanns og vinnuveit­anda að fella niður eða lækka orlofsuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn, sem tekur mið af launum hvers og eins.

Heimildir:

  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

Ert þú með spurningu?

Öflugt ráðgjafarteymi sérfræðinga svarar spurningum þínum; um kynlíf, námið, sjálfsmyndina, þunglyndi, fíkn, sambönd eða hvað annað sem þér liggur á hjarta. Full nafnleynd og 100% trúnaður.

Spyrja spurningar