Fyrsti lýðskólinn á Íslandi!
Lýðskólinn á Flateyri er sá fyrsti sinnar gerðar á Íslandi. Þar er hægt að velja um tvær námsleiðir, annars vegar Lífið á norðurslóðum og hins vegar Hugmynda- og hönnunarbraut. Hin fyrri er alþjóðleg braut sem kennd er á ensku og einblínir á sjálfbærni, náttúruna og útivist en sú seinni er kennd á Íslensku og snýr að skapandi greinum. Öll námskeið við Lýðskólann á Flateyri eru kennd í 1-2ja vikna stuttum en hnitmiðuðum lotum.
Hvað eru lýðskólar?
Lýðskólar eru einskonar lífsleikniskólar. Þar er ekki lögð áhersla á próf heldur fremur þátttöku og að nemendur læri eitthvað gagnlegt og skemmtilegt. Nánari upplýsingar um lýðskóla almennt má finna hér.
Hvar er Flateyri?
Flateyri er staðsett í miðjum Önundarfirði og tilheyrir sveitarfélaginu Ísafjarðarbæ. Það tekur 5 klukkustundir og 22 mínútur að keyra á Flateyri frá miðbæ Reykjavíkur. Þó er líklega betra að stoppa á leiðinni og taka rúmlega 7 tíma í ferðina. Þá eru eflaust mörg spennandi stopp á leiðinni sem hægt er að kynna sér áður en haldið er af stað. Einnig er hægt að fljúga til Ísafjarðar og er flugið frá Reykjavíkur til Ísafjarðar rúmlega 30-40 mínútur og er þá um það bil 15-20 mínútna keyrsla frá Ísafjarðarflugvelli til Flateyrar.
Styrkir til námsins?
Enn sem komið er styrkir Menntasjóður Námsmanna ekki nám við lýðskóla, hvort sem um ræðir skóla á Íslandi eða annarsstaðar á jörðinni. En starfsmenntasjóðir stéttarfélaga styrkja oft meðlimi til náms við lýðskóla. Einnig bjóða mörg stéttarfélög upp á styrki til náms. Síðast en ekki síst er hægt að leita til banka sem óska eftir umsóknum um námsmannastyrki árlega og bjóða stundum upp á sérstök lán fyrir námsmenn.
Hefuru tök á því að safna þér fyrir náminu?
Eru námsgarðar fyrir nemendur?
Já! Það er ýmist hægt að leigja stúdíóíbúðir eða einstaklingsherbergi. Lýðskólinn er með 14 stúdíóíbúðir og er hver íbúð með sér ísskáp og baðherbergi en sameiginlegt eldhús. Skólinn er einnig með 12 einstaklingsherbergi með sameiginlegum baðgerbergjum, stofum og eldhúsum. Á báðum námsgörðum er þvottahús með þvottavélum, þurrkurum og snúrum. Nánar er hægt að lesa um námsgarðana hér.
Hægt er að sækja um húsnæðisbætur fyrir leigu á herbergjum eða stúdíóíbúðum hér.
Afhverju ætti ég að íhuga nám við lýðskóla?
Lýðskólar haga kennslu sinni á allt annan hátt en aðrir skólar. Lærdómurinn og ávinningur þess að sækja slíkan skóla er því allt annar líka. Í lýðskólum ríkir mikið frelsi og þeir byggja á því að fólk sem sækir þá, komi með hugmyndir sem hafa áhrif á starfið. Nemendur og kennarar vinna náið saman og mynda sterka liðsheild. Á Flateyri er hægt að sækja um að vera í eina önn eða tvær. Allar nánari upplýsingar um Lýðskólann á Flateyri má finna á heima síðu þeirra, hér.
Meðfylgjandi myndir úr Lýðskólanum á Flateyri:





HVAÐ SEGIR ÞÚ UM ÞETTA EFNI?