Það er eðlilegur hluti af lífinu að hafa kynferðislegar langanir og vera sáttur í eigin líkama. Sumt fólk laðast að karlmönnum, kvenmönnum eða öðrum kynjum og sumir tengja ekki við það kyn sem þeim var úthlutað við fæðingu. Þegar einstaklingar „koma út úr skápnum“ er verið að vísa til þess þegar einstaklingar tilkynna sínum nánustu eða heiminum að þeir hafi aðra kynhneigð en gagnkynhneigð, eða séu trans eða kynsegin.
Við hvern getur fólk talað um kynhneigð eða kynvitund sína?
Mikilvægt er að geta rætt um líðan sína og tilfinningar við einhvern og fengið hjálp við að segja öðrum frá kynhneigð eða kynvitund sinni. Sumir ræða þetta við vini sem þeir treysta eða foreldra sína. Aðrir treysta sér ekki til þess, vilja það ekki eða geta það ekki. Því er gott að geta átt möguleika á að ræða við einhvern sem bæði hefur verið í sömu sporum eða hefur reynslu af því að styðja við hinsegin einstaklinga.
Samtökin ‘78 hjálpa fólki við að koma út úr skápnum
Samtökin ’78 bjóða upp á einstaklingsviðtöl, hjálp og ráðgjöf fyrir hinsegin fólk sem enn hefur ekki „komið út úr skápnum“ og einnig þeirra sem eru komnir út úr skápnum og eiga erfitt með að fóta sig í samfélaginu. Ráðgjafarnir hafa mikla reynslu af því að ræða við hinsegin einstaklinga í öllum aldurshópum. Boðið er upp á klukkutímaviðtöl í 2-3 skipti í senn og eru viðtölin ókeypis. Öll viðtöl, símtöl og tölvupóstar eru trúnaðarmál. Best er að hafa samband beint við samtökin í gegnum síma 552-7878 eða tölvupóstinn skrifstofa@samtokin78.is.
Áttavitinn lumar einnig á grein um hvernig hægt er að koma út úr skápnum en þar er að finna nokkrar gagnlegar ábendingar.
Heimildir og frekari upplýsingar
HVAÐ SEGIR ÞÚ UM ÞETTA EFNI?