Hver eru einkenni herpes?

Fyrstu einkenni herpes eru sviði eða verkur í húð eða slímhúð. Síðan koma fram misstórar blöðrur. Blöðrurnar springa fljótt og verða að sársaukafullum sárum. Auk þess getur sýkingin valdið hita, höfuðverk, slappleika og í undantekningartilfellum heilahimnubólgu. Í fyrsta sinn sem blöðrur og sár myndast gróa þau vanalega innan þriggja vikna. Þegar sýking á sér aftur stað koma sárin yfirleitt á sama stað og áður en eru vægari, sársaukaminni og gróa yfirleitt hraðar.

Einkennin koma vanalega í ljós einni til þremur vikum eftir smit. Sumir fá einkennin seinna og eru dæmi um að liðið geti langur tími þar til einkennin koma fram. Flestir sem smitast fá reyndar aldrei sár og blöðrur og margir vita því aldrei að þeir séu smitaðir af herpes.

Er hættulegt að fá herpes?

Nei, yfirleitt er herpes ekki hættulegur sjúkdómur. Í upphafi getur hann þó valdið miklum óþægindum og verið svæsinn. Hann getur valdið alvarlegri sýkingu hjá nýfæddum börnum sem smitast af móður í fæðingu. Því er mikilvægt fyrir þungaðar konur að láta lækninn vita ef þær eru sýktar af herpes.

Hvernig er herpes greint?

Auðvelt er að greina herpes ef einkennin eru komin fram, en það er gert með læknisskoðun og sýnatöku. Hægt er að hafa samband við göngudeild húð- og kynsjúkdóma eða heimilislækni.

Hvernig er herpes meðhöndlað?

Ennþá er engin lækning til við herpes. Aftur á móti er til meðferð sem getur dregið úr einkennum og stytt tímann sem fólk er með blöðrur og sár. Til þess að meðferðin virki þarf að hefja hana eins fljótt og unnt er.

Hvernig smitast herpes?

Herpes-veiran finnst í sýktum sárum og sáravökvum. Veiran smitast aðallega þegar sár eða sáravökvi snertir slímhúð kynfæra, endaþarms, augna, vara eða munns bólfélaga. Smit getur einnig átt sér stað ef maður fær sýktan sáravökva á hendurnar og snertir síðan eigin slímhúð eða slímhúð annarra.

Hvernig er hægt að koma í veg fyrir smit?

Smokkurinn getur einungis verndað þá hluta kynfæranna sem hann hylur. Veira í sári sem er ekki hulin smokki getur því smitast við samfarir. Smithættan er mest þegar sjúkdómurinn er með sýnilegum blöðrum og sárum og rétt áður en blöðrurnar koma fram. Fólk ættir því ekki að hafa samfarir þegar ástandið er þannig. Þegar engar blöðrur eða sár eru á húð eða slímhúð er smithættan minni. Góður handþvottur þegar sár og blöðrur koma fram getur komið í veg fyrir að fólk smiti aðra með höndunum.

 

  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

Ert þú með spurningu?

Öflugt ráðgjafarteymi sérfræðinga svarar spurningum þínum; um kynlíf, námið, sjálfsmyndina, þunglyndi, fíkn, sambönd eða hvað annað sem þér liggur á hjarta. Full nafnleynd og 100% trúnaður.

Spyrja spurningar