Bæjarhátíðir 2025 (birt með fyrirvara um breytingar).
Á fyrri hluta árs er lítið um hátíðarhöld en þegar líða fer að sumri er heilmikið um að vera. Í þessari grein verður ekki fjallað um hátíðir á höfuðborgarsvæðinu, heldur einblínt á atburði sem eru á landsbyggðinni.
Apríl
- Aldrei fór ég suður (18.-19 apríl 2025) er sannkölluð rokkhátíð alþýðunnar sem haldin er um páskana ár hvert.
- Hammond hátíð (24.-27. apríl 2025) er tónlistarhátíð á Djúpavogi.
Maí
- Fjör í Flóa (30.maí-31. maí) er fjölskyldu- og menningarhátíð sem haldin er í Flóamannahreppi.
Júní
- Sátan (5.-7. júní) er þriggja daga þungarokkshátíð sem haldin er í Stykkishólmi.
- Skjaldborg (6.-9. júní) er íslensk heimildamyndahátíð sem haldin er á Patreksfirði. Hátíðinni er ætlað að vera tækifæri fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn til að koma saman.
- Sjóarinn síkáti (dagsetning ekki komin 2025) er fjölbreytt bæjarhátíð í Grindavík sem haldin er um sjómannadagshelgina til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans. Vegna aðstæðna verður hátíðin haldin á Granda í Reykjavík.
- Bíladagar á Akureyri (13.-17. júní) er hátíð bifreiðaunnenda. Þar er keppt í kappakstri í mörgum flokkum og bílar sýndir.
- Berjadagar (14.-16. júní) er tónlistarhátíðin sem er haldin árlega í Ólafsfirði og er flutt þar aðgengileg kammertónlist, auk þess sem gestir úr öðrum listgreinum taka þátt.
- Víkingahátíðin í Hafnarfirði (14.-18.júní) er hátíð sem býður upp á markaði, víkingabarðdaga, leiki, tónlist, handverk og víkingaskóla fyrir börn.
- HIP fest! Hvammstangi international puppet fest (dagsetning ekki komin 2025) er er brúðulistahátíð á Hvammstanga, Norðurlandi vestra, þar sem brúðuleiksýningar og -kvikmyndir verða í hávegum hafðar.
- Skógardagurinn mikli (dagsetning ekki komin 2025) er árleg skógarhátíð Félags skógarbænda á Austurlandi, Barra, Héraðs- og Austurlandsskóga, Skógræktarfélags Austurlands og Skógræktar ríkisins verður haldinn í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi.
- Á fætur í Fjarðabyggð (21.-28. júní) er fjölskylduvæn gleði- og skemmtivika með úrvalsgönguferðum og afþreyingu við allra hæfi.
- Brákarhátíð (26.-28. júní) er fjölskylduhátíð í Borgarnesi til heiðurs Brák, kvenhetjunni miklu frá víkingatímum.
- Humarhátíðin (27.-29. júní) á Höfn er haldin í lok júní og er þar boðið upp á humarsúpu og fjölbreytta dagskrá á völdum stöðum í sveitarfélaginu.
- Hamingjudagar á Hólmavík er hátíð fyrir brottflutta Strandamenn og Hólmvíkinga og vettvangur til að hittast og eiga góða stund á heimaslóð.
Júlí
- Á Þjóðlagahátíð á Siglufirði (2.-6. júlí) er boðið upp á dansa, námskeið og tónleika.
- Írskir dagar (3.-6. júlí). Í byrjun júlí ár hvert halda Skagamenn bæjarhátíð til að minnast arfleifðar sinnar og gera sér glaðan dag. Þetta er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri skemmtun; íþróttum, markaði, götugrilli, dorgveiði, sandkastalakeppni og keppni um rauðhærðasta Íslendinginn.
- Goslokahátíð Vestmannaeyja (3.-6. júlí) er bæjarhátíð í Vestmannaeyjum þar sem endalokum eldgossins á Heimaey 1973 er fagnað. Hátíðin er alltaf fyrstu helgina í júlí og var fyrsta samkundan árið 1974.
- Hátíðni (4.-6. júlí) er grasrótar listahátíð haldin á Borðeyri.
- Heim í Búðardal (dagsetning ekki komin 2025) er sumarhátíð sem bíður upp á margs konar skemmtun eins og fjölskyldutónleika, barnaskemmtun, markað, kvöldvöku og dansleik.
- Bryggjuhátíð á Stokkseyri (dagsetning ekki komin 2025) er árleg Bryggju-tónlistarhátíð á Stokkseyri.
- Eistnaflug (11.-13. júlí) er árleg þungarokks tónlistarhátíð sem haldin er í Neskaupsstað aðra helgina í júlí.
- Kótelettan (10.-13. júlí) er bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhátíð sem haldin er á Selfossi. Þar er sýnd framleiðsla bænda á Íslandi ásamt fjölbreyttri skemmtidagskrá.
- Markaðshelgin í Bolungarvík er blanda af öflugu markaðstorgi og yfirgripsmikilli tónlistar- og fjölskylduskemmtun.
- Í Snæfellsbæ eru tvær hátíðir haldnar til skiptis. Ein á ári hverju. Það eru Ólafsvíkurvaka (4.-6. júlí) og Sandara- og rifsaragleði. Hátíðirnar henta fjölskyldum sérlega vel.
- Hríseyjarhátíð (11-12. júlí). Boðið er upp á fjölskylduvæna dagskrá sem felst m.a.í óvissuferðum um eyjuna, fjöruferð, kvöldvöku, varðeld og söng.
- Dýrafjarðadagar hefjast yfirleitt á fimmtudegi og meðal þess sem boðið hefur verið upp á eru listasýningar, leikrit, íþróttir, súpa í garði, og ótal fleira skemmtilegt. Á laugardagskvöldi er grillveisla og kvöldvaka.
- Húnavaka (16.-20.júlí) er fjölskylduskemmtun og bæjarhátíð sem haldin er á Blönduósi
- Á Hlaupahátíð (18-19.júlí) á Vestfjörðum er kept í hlaupum, hjólreiðum, sjósundi og þríþraut.
- Bryggjudagar (16.-20. júlí) á Þórshöfn í Langanesbyggð er bæjarhátíð þar sem hægt er að finna skemmtilega dagskrá eins og tónleika, dorgveiðikeppni, brunaslöngubolta og annarri fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
- Franskir dagar á Fáskrúðsfirði (17.-20. júlí) er menningarleg bæjarhátíð með frönsku ívafi.
- Eldur í Húnaþingi (22.-27. júlí) er unglistahátíð í Húnaþingi sem sett er á miðvikudagskvöldi og stendur fram á sunnudag.
- Bryggjuhátíð á Drangsnesi (dagsetning ekki komin 2025) er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá og er að finna eitthvað við hæfi fyrir alla
- Bræðslan (25. júlí) er sannkölluð tónlistarveisla á Borgarfirði Eystri.
- Mærudagar (25.-27. júlí) er bæjarhátíð á Húsavik og er hefð að bæjarbúar sameinist um að skipta bænum í þrjú hverfi sem einkennast með mismunandi litum.
- Reykholtshátíðin (25.-27. júlí) er marglofuð tónlistarhátíð sem leggur áherslu á klassíska tónlist frá 18. og 19. öld.
- Trilludagar – Fjölskyldudagar á Siglufirði
- Smiðjuhátíð er haldin á Tækniminjasafni Austurlands sem er staðsett á seyðisfirði.
- Sumarhátíð UÍA (31.júlí- 3.ágúst) er íþróttahátíð sem haldin er á Egilsstöðum.
Ágúst
Finna má upplýsingar um Verslunarmannahelgina hér.
Aðrar útihátíðir í Ágúst:
- ACT ALONE (8.-10. ágúst) er leiklistarhátíð sem er haldin árlega á Suðureyri.
- Hamingjan við hafið (6.-11. ágúst) er fjölskylduhátíð í Þorlákshöfn þar sem hamingjan ræður ríkjum.
- Sumar á Selfossi er bæjar- og fjölskylduhátíð sem hefur vaxið úr því að vera eins dags hátíð í það að vera fjögurra daga skemmtun.
- Handverkshátíðin í Eyjafjarðasveit er rótgróin handverkshátíð.
- Töðugjöld er bæjarhátíð á Hellu á Rangárvöllum.
- Danskir dagar í Stykkishólmi er hátíð sem fagnar 30 ára afmæli sínu í ár
- Blómstrandi dagar í Hveragerði
- Sveitasæla er landbúnaðar- og bændahátíð sem haldin er á Sauðárkróki.
- Í túninu heima – Bæjarhátíð Mosfellsbæjar
- Reykhóladagar (15.-18. ágúst) er bæjarhátíð með fjölbreyttri dagskrá, svo sem súpu í heimahúsum, kassabílarallýi og balli.
- Hvalfjarðardagar (16.-18. ágúst)
- Akureyrarvaka (30.ágúst- 1.september) – menningarhátíð á Akureyri
September
- Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, er haldin fyrstu helgina í september. Áhersla er lögð á viðamiklar uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum.
- Ormsteiti bæjarhátíð (13.-23. september) er uppskeruhátíð sem haldin er á Egilsstöðum og vítt og breytt um Fljótsdalshérað.
- Þríþraut Vasa er þríþrautarkeppni sem haldin er haldin fyrstu helgina í september í Bolungarvík.
- Uppskeruhátíðin á Flúðum er haldin fyrsta laugardag í september. Þar er boðið upp á matvæli úr heimabyggð, handverk, menningu og listir.
- Réttað er í Laufskálarétt í Hjaltadal síðustu helgina í september. Þar er skemmtun og á laugardeginum taka allir sem vettlingi geta valdið þátt í réttarstörfum.
Október
- Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dölum er haldin fyrsta vetrardag ár hvert.
- Northern Wave International Film Festival er kvikmyndahátíð sem fer fram í október í Grundarfirði. Hátíðin leggur áherslu á norræna nýbylgjukvikmyndagerð og sýnir bæði stuttmyndir og tónlistarmyndbönd.
Nóvember
- Safnahelgi á Suðurlandi er haldin ár hvert fyrstu helgina í nóvember. Þá er boðið upp á fjölbreytta viðburði um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum.
Bæjar- og útihátíðir 2025
Á Íslandi er heilmikið um bæjar- og sumarhátíðir en fæstir vita þó um þær allar.

HVAÐ SEGIR ÞÚ UM ÞETTA EFNI?