Bæjarhátíðir 2023-24 (birt með fyrirvara um breytingar). 

Á fyrri hluta árs er lítið um hátíðarhöld en þegar líða fer að sumri er heilmikið um að vera. Í þessari grein verður ekki fjallað um hátíðir á höfuðborgarsvæðinu, heldur einblínt á atburði sem eru á landsbyggðinni.

Apríl

Maí

  • Fjör í Flóa er fjölskyldu- og menningarhátíð sem haldin er í Flóamannahreppi. 

Júní

  • Skjaldborg er íslensk heimildamyndahátíð sem haldin er á Patreksfirði. Hátíðinni er ætlað að vera tækifæri fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn til að koma saman.
  • Sjóarinn síkáti er fjölbreytt bæjarhátíð í Grindavík sem haldin er um sjómannadagshelgina til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans.
  • Skógardagurinn mikli er árleg skógarhátíð Félags skógarbænda á Austurlandi, Barra, Héraðs- og Austurlandsskóga, Skógræktarfélags Austurlands og Skógræktar ríkisins verður haldinn í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi.
  • Bíladagar á Akureyri er hátíð bifreiðaunnenda.  Þar er keppt í kappakstri í mörgum flokkum og bílar sýndir.
  • Lummudagar í Skagafirði er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá.
  • Humarhátíðin á Höfn er haldin í lok júní (ekki gefin út dagsetning 2021) og er þar boðið upp á humarsúpu og fjölbreytta dagskrá á völdum stöðum í sveitarfélaginu.
  • Hamingjudagar  á Hólmavík er hátíð fyrir brottflutta Strandamenn og Hólmvíkinga og vettvangur til að hittast og eiga góða stund á heimaslóð.
  • Brákarhátíð er fjölskylduhátíð í Borgarnesi til heiðurs Brák, kvenhetjunni miklu frá víkingatímum.
  • Á fætur í Fjarðabyggð er fjölskylduvæn gleði- og skemmtivika með úrvalsgönguferðum og afþreyingu við allra hæfi.

Júlí

  • Kótelettan er bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhátíð sem haldin er á Selfossi. Þar er sýnd framleiðsla bænda á Íslandi ásamt fjölbreyttri skemmtidagskrá.
  • Írskir dagar. Í byrjun júlí ár hvert halda Skagamenn bæjarhátíð til að minnast arfleifðar sinnar og gera sér glaðan dag. Þetta er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri skemmtun; íþróttum, markaði, götugrilli, dorgveiði, sandkastalakeppni og keppni um rauðhærðasta Íslendinginn.
  • Markaðshelgin í Bolungarvík er blanda af öflugu markaðstorgi og yfirgripsmikilli tónlistar- og fjölskylduskemmtun.
  • Goslokahátíð Vestmannaeyja er bæjarhátíð í Vestmannaeyjum þar sem endalokum eldgossins á Heimaey 1973 er fagnað. Hátíðin er alltaf fyrstu helgina í júlí og var fyrsta samkundan árið 1974.
  • Í Snæfellsbæ eru tvær hátíðir haldnar til skiptis. Ein á ári hverju. Það eru Ólafsvíkurvaka  og Sandara- og rifsaragleði. Hátíðirnar henta fjölskyldum sérlega vel.
  • Dýrafjarðadagar hefjast yfirleitt á fimmtudegi og meðal þess sem boðið hefur verið upp á eru listasýningar, leikrit, íþróttir, súpa í garði, og ótal fleira skemmtilegt. Á laugardagskvöldi er grillveisla og kvöldvaka.
  • Bryggjuhátíð á Stokkseyri er árleg Bryggju-tónlistarhátíð á Stokkseyri.
  • Á Þjóðlagahátíð á Siglufirði er boðið upp á dansa, námskeið og tónleika.
  • Eistnaflug er árleg tónlistarhátíð sem haldin er í Neskaupsstað aðra helgina í júlí.
  • LungA er alþjóðleg listahátíð fyrir ungt fólk sem stendur í vikutíma á Seyðisfirði.  Listasmiðjur, sýningar og magnaðir tónleikar.
  • Sumarhátíð UÍA er íþróttahátíð sem haldin er á Egilsstöðum.
  • Hríseyjarhátíð – Boðið er upp á fjölskylduvæna dagskrá sem felst m.a.í óvissuferðum um eyjuna, fjöruferð, kvöldvöku, varðeld og söng.
  • Reykhóladagar er bæjarhátíð með fjölbreyttri dagskrá, svo sem súpu í heimahúsum, kassabílarallýi og balli.
  • Heim í Búðardal er sumarhátíð sem bíður upp á margs konar skemmtun eins og fjölskyldutónleika, barnaskemmtun, markað, kvöldvöku og dansleik. 
  • Húnavaka er fjölskylduskemmtun og bæjarhátíð sem haldin er á Blönduósi
  • Á Hlaupahátíð á Vestfjörðum er kept í hlaupum, hjólreiðum, sjósundi og þríþraut.
  • Bræðslan er sannkölluð tónlistarveisla á Borgarfirði Eystri.
  • Franskir dagar á Fáskrúðsfirði er menningarleg bæjarhátíð með frönsku ívafi.
  • Mærudagar er bæjarhátíð á Húsavik og er hefð að bæjarbúar sameinist um að skipta bænum í þrjú hverfi sem einkennast með mismunandi litum.
  • Eldur í Húnaþingi er unglistahátíð í Húnaþingi sem sett er á miðvikudagskvöldi og stendur fram á sunnudag.
  • Reykholtshátíðin er marglofuð tónlistarhátíð sem leggur áherslu á klassíska tónlist frá 18. og 19. öld.
  • Á góðri stund á Grundarfirði. Þessi vinarlega fjölskylduhátíð er hugsuð fyrir Grundfirðinga, innfædda, aðflutta og brottflutta, vini þeirra og vandamenn, og aðra gesti sem eiga leið þangað.
  • Trilludagar – Fjölskyldudagar á Siglufirði
  • Smiðjuhátíð er haldin á Tækniminjasafni Austurlands sem er staðsett á seyðisfirði.

Ágúst

Finna má upplýsingar um Verslunarmannahelgina hér.

Aðrar útihátíðir í Ágúst:

September

  • Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, er haldin fyrstu helgina í september. Áhersla er lögð á viðamiklar uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum.
  • Ormsteiti bæjarhátíð er uppskeruhátíð sem haldin er á Egilsstöðum og vítt og breytt um Fljótsdalshérað.
  • Þríþraut Vasa er þríþrautarkeppni sem haldin er haldin fyrstu helgina í september í Bolungarvík.
  • Uppskeruhátíðin á Flúðum er haldin fyrsta laugardag í september. Þar er boðið upp á matvæli úr heimabyggð, handverk, menningu og listir.
  • Réttað er í Laufskálarétt í Hjaltadal síðustu helgina í september. Þar er skemmtun og á laugardeginum taka allir sem vettlingi geta valdið þátt í réttarstörfum.
  • Á Bláberjadögum í Súðavík er lögð áhersla á lok berjatímabils með fjölbreyttri  tónlist og ýmsum berjatengdum keppnum.

Október

Nóvember

  • Safnahelgi á Suðurlandi er haldin ár hvert fyrstu helgina í nóvember.  Þá er boðið upp á fjölbreytta viðburði um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum.

  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

Ert þú með spurningu?

Öflugt ráðgjafarteymi sérfræðinga svarar spurningum þínum; um kynlíf, námið, sjálfsmyndina, þunglyndi, fíkn, sambönd eða hvað annað sem þér liggur á hjarta. Full nafnleynd og 100% trúnaður.

Spyrja spurningar