Hvað eru mæðralaun/feðralaun?
Mæðra- og feðralaun eru styrkir eða greiðslur ætlaðar einstæðum foreldrum sem hafa tvö börn eða fleiri á sínu framfæri. Tryggingastofnun greiðir út mæðralaun.
Hverjir eiga rétt á mæðra/feðralaunum?
Allir einstæðir foreldrar sem eru búsettir á Íslandi og hafa tvö börn eða fleiri á sínu framfæri eiga rétt á slíkum launum. Fari fólk í sambúð fyrnist hinsvegar rétturinn, hvort sem það er með foreldri barnsins eða öðrum aðila.
Hversu há eru mæðra/feðralaun?
Árið 2020 eru mæðralaun/feðralaun sem hér segir:
- 10.296 krónur á mánuði fyrir tvö börn.
- 26.769 krónur á mánuði fyrir þrjú börn eða fleiri.
Hvernig er sótt um mæðra- og feðralaun?
Sótt er um á mínu síðum á heimasíðu TR.
Frekari upplýsingar um mæðralaun/feðralaun má finna á heimasíðu TR, s.s. hvaða skjöl þurfa að fylgja umsókninni í ákveðnum tilvikum.
HVAÐ SEGIR ÞÚ UM ÞETTA EFNI?