Svo þú ert búinn að dusta rykið af hjólinu, smyrja, strekkja og stilla, festa hjálminn og tilbúin/n að leggja af stað? Ef þú ert ekki viss þá mælum við með þessari grein. En þó hjólið sé í toppstandi þá er bara hálfur sigur unninn, við þurfum að vera með umferðarreglurnar á hreinu ef við ætlum að huga vel að eigin öryggi og annarra.

Samkvæmt lögum eru reiðhjól skilgreind sem ökutæki og í megindráttum gilda sömu reglur um notkun þeirra í umferðinni en athugið að reiðhjólafólk má nota gangstíga og gangstéttar hér á landi. Vert er að nefna að flestir árekstrar bifreiða og hjóla eru tilkomnir vegna símanotkunar, gefum símanum bara smá pásu á meðan við hjólum og keyrum.

Að hjóla á akbrautum

Yfirleitt er öruggara að hjóla á akbrautum, sé þar ekki þung og hröð umferð. Að hjóla á akbrautum krefst fullrar athygli hjólreiðamannsins sem verður að fylgja eftirfarandi reglum:

  • Börn yngri en 7 ára mega ekki hjóla á akbrautum nema þau séu í fylgd 15 ára eða eldri.
  • Hjólreiðafólk skal taka sér stöðu á þeirri akrein sem lengst er til hægri.
  • Jafnframt skal hjólreiðamaður taka sér víkjandi stöðu (hjóla hægra megin á akreininni) nema hann telji að það sé hættuminna að hjóla sem næst miðri akrein (í ríkjandi stöðu).
  • Ríkjandi staða getur verið öruggari þegar hjólað er um hringtorg og í þröngum götum þar sem hjólað er með fram kyrrstæðum bílum.
  • Hjólreiðafólk á að gefa stefnubreytingar til kynna með því að rétta út beina hönd, tímanlega. Ágætt er að hugsa sem svo að handabending hjólreiðafólks sé notuð í sömu tilfellum og stefnuljós á bílum.
  • Einnig á að gefa merki með því að beina vinstri hendi upp þegar hægja á ferð eða stöðva. Áður en merkið er gefið ætti að líta aftur og gæta að umferð.
  • Öruggara er að fara í röð á gatnamótum fremur en að taka fram úr ökutækjum.

Að hjóla í hringtorgum

  • Hjólreiðafólk ætti að koma að hringtorgi í ríkjandi stöðu og hjóla ríkjandi áfram þar til farið er úr hringtorginu. Þá ætti að leitast til þess að taka víkjandi stöðu á akreininni.
  • Hringtorg með 2 akreinum geta verið erfiðari viðureignar og þar getur verið gagnlegt fyrir vant hjólreiðafólk að hjóla hraðar svo hægist ekki á umferðinni. Skiljanlega geta tvöföld hringtorg verið stressandi og því gæti jafnvel verið betra að hinkra á gangstéttinni þar til tækifæri gefst á að fara yfir samhliða gangandi vegfarendum.

Að hjóla á gangstígum

Hjólreiðafólk má nota göngustíga og gangstéttar með því skilyrði að það valdi ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum. Gangandi vegfarendur vita sjaldnast af hjólreiðafólki fyrir aftan sig, því er á ábyrgð hjólreiðamannsins að láta vita af sér og nota bjölluna. Mundu að:

Gangandi vegfarendur eiga alltaf forgang.

  • Hjólreiðafólki og gangandi vegfarendum ber að virða merkingar sem tilgreina hvort stígurinn sé gangstígur eða hjólreiðastígur, sjá hér.
  • Líkt og á akbrautum gildir hægri umferð á gangstígum og tekið er fram úr vinstra megin komi sú aðstaða upp.
  • Hjólreiðafólki ber að hægja á sér og nota bjöllu áður en komið er blint að gangandi vegfarendum, blindhorni eða beygju.
  • Þegar hjólreiðafólk þarf að fara yfir akbraut borgar sig að hægja vel á sér, jafnvel niður á gönguhraða. Ef umferð er mikil er gott að stoppa alveg og teyma hjólið yfir akbraut þegar umferð hefur minnkað eða gangandi vegfarendur eiga réttinn.
  • Talandi um að eiga réttinn, að sjálfsögðu ber að virða rauða og græna kallinn.

En ég er á bíl..

Ekki hafa áhyggjur, Áttavitinn hefur einnig tekið saman hvernig bílstjórar eiga að haga sínum akstri innan um hjólreiðafólk.

Tillitsemi skiptir miklu máli, bæði fyrir hjólreiðafólk og bílstjóra.

  • Þegar ekið er fram úr hjólreiðafólki ber að víkja tímanlega út til hliðar, það gefur öðrum bílstjórum tækifæri á að sjá hjólreiðafólk sem fyrst. Bilið á milli bíls og hjólreiðafólks ætti ekki að vera minni en einn meter þegar tekið er fram úr.
  • Sérstaklega skal hafa varan á þegar tekið er fram úr hjólreiðafólki í beygju.
  • Þegar beygt er til hægri innan um hjólreiðafólk þarf ökumaður að vera viss um að hann sé ekki að beygja í veg fyrir viðkomandi og fylgjast grannt með.
  • Ökumenn stærri bifreiða þurfa að vera sérstaklega á varðbergi þegar ekið er samhliða hjólreiðafólki á sömu akrein. Afturendi ökutækisins getur tekið ansi stórt pláss þegar beygt er og getur stórskaðað þann sem fyrir honum verður. Vert er að hafa í huga að hjólreiðafólk ætti að forðast að hjóla samhliða stórum ökutækjum.
  • Í hringtorgum þarf að sýna sérstaka varúð, hægja á sér ef svo ber við og gefa hjólreiðafólki pláss. Sömu reglur gilda um hjólreiðafólk í hringtorgum og ökumenn bifreiða varðandi hver á réttinn.
  • Mundu að líta í hliðarspegilinn áður en þú opnar hurðina á kyrrstæðum bíl.

Heimildir:

Landssamtök Hjólreiðamanna
Myndbönd samgöngustofu

  • Var efnið hjálplegt?
  •    Nei

Ert þú með spurningu?

Öflugt ráðgjafarteymi sérfræðinga svarar spurningum þínum; um kynlíf, námið, sjálfsmyndina, þunglyndi, fíkn, sambönd eða hvað annað sem þér liggur á hjarta. Full nafnleynd og 100% trúnaður.

Spyrja spurningar